GOTT AÐ HEYRA AÐ HANN HEFUR FUNDIÐ ÁSTINA Á NÝ

jessica-simpson-nick-lacheyÉg man eftir honum þessum - hann var giftur Jessicu Simpson og þau voru með raunveruleikaþátt og það voru ófá skiptin sem maður skellti upp úr enda hún Jessica með endemum gáfuð stelpa - eins og skiptið sem hún spurði Nick hvaða tegund af fiski kjúklingakjöt væri LoL

ég hló mikið það kvöld - maður alveg spyr sig er hún svona fáfróð eða erþetta markaðssetnign hjá greyinu - lítil - ljóshærð & vitlaus??

ég held að það sé ekki sniðugt ef þú sért svona celeb að hafa sambandið allt opið fyrir öllum - alltof mikið álag og það kom í lokaniðurstöðu hjá þessu glæsilega pari - skilin.

Þau hafa nú bæði haldið áfram með líf sitt þó og fundið sér maka - Nick hinsvegar virðist hafa haldið í sinn en Jessica er ekki alveg að meika það í ástarlífinu enda nýjir elskhugar liggur við á 3 mánaða fresti - það er vonandi að það fari að birta til í lífinu hennar og að hún fari að finna sér spússa

 

 

 

nick-lachey-vanessa

 

 

 

 

Þetta er hins vegar hin nýja kona í lífi Nicks Vanessa Minnillo leikkona,sjónvarpsþáttastjórnandi og módel - þau hafa verið saman síðan 2006 hættu stuttlega saman í fyrra og nú eru þau að mér skilst að ganga í það heilaga ef þau eru ekki búin að því nú þegar - best of luck og vonandi gera þau ekki veruleikaþátt um sig Wink

 verð samt að segja það - Jessica er nú flottariCool

en það er líklegast smekksatriði


mbl.is Nick Lachey trúlofaður Minnillo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband