Svineflu sprautan tekin með trompi

Við fjölskyldan fórum í dag og létum öll sprauta okkur - verð nú að viðurkenna að mér er alveg svakalega illa við nálar - en maður varð nú að bera hetjulegt andlitið fyrir unga drenginn minn sem  var með hjartað sitt alveg í brókunumyfir þessu öllu saman - og það merkilegasta af þessu öllu saman var að sprautan var ekki vondWink litla snátan þó varð ekki sátt og grét sig sáran enda bara 10 mánaða gömul þannig að ekkert að furða - situr þarna sæt og heldur að verið sé að fara að knúsa sig og spjalla við sig og svo bara búmm kemur einhver gaur og stingur þig:) sé þetta alveg fyrir mér - því svipurinn á henni fór úr brosi yfir í skeifu og þaðan í hátt org

 þangað til næst Pinch


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir

já hún fyrirgefur Gaurnum ábyggilega seint, þú stóðst þig eins og hetja Ástin mín jafnilla og þér er við sprautur, ég fann ekkert fyrir sprautunni en vá hvað mér er illt í hendinni núna hahaha en það eru líka einu óþægindin sem ég finn

Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 27.11.2009 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband