23.11.2009 | 08:37
kreppan
Gestum lítið fækkað í Kringlunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2009 | 19:54
já sæll
Þjófur kýldi tveggja ára barn í andlitið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2009 | 10:23
hvað er að gerast
Alvarlegar árásir í miðbænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2009 | 11:32
Hún Oprah Winfrey
Hvernig verður lífið án Oprah Winfrey spjalldrottningin sem hefur haft svo mikið með sér í öll þessi ár - út frá henni hefur til að mynda komið hinn frægi dr.Phil sem að hefur líka slegið svona eftirminnilega í gegn líkt og Oprah þó svo hann eigi ekki jafn mörg ár í sjónvarpi og hún
Margt gott hefur komið frá henni og hefur hún tekið höndum saman á mörgum sviðum til að mynda sitt eigið blað, sjónvarpsstöð og einnig hefur hún unnið að mörgum góðgerðar málefnum helst þó það sem ég man eftir er í Afríku. Nokkur af þessum góðgerðarstofnunum hennar heita The Angel Network, The Oprah Winfrey foundation og The Oprah WInfrey operation foundation sem vinnur helst að skólanum Leadership Academy í suður Afríku.
Ég hef fylgst með Oprah í mörg ár og merkilegt hvað hún býr yfir mikilli visku - en mesta viskan hennar er sú að hún blessar aðra. Maður á eftir að sakna hennar en ég einhvern veginn efa að hún hverfi af yfirborðinu þessi merka manneskja.
Samtalsþættir Oprah Winfrey hætta senn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2009 | 09:14
Það sem fólk gerir ekki fyrir fljótfenginn aur
Sadie Frost segir allt" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2009 | 08:09
Enn eitt einkennilega dæmið
Mér finnst það stórundarlegt hvernig unnið er á málum hér á Íslandi - einstaklingar eru gripnir við einhverjar stórhættulegar iðjur og glæpsamleg athæfi og þeim er beinlínis skipað að fara heim, og sofa úr sér - hvað gerist í framhaldi af þessu athæfi? Mun hann halda vinnu sinni þar sem hann stofnaði lífi sínu og annarra í stóra hættu með gáleysi sínu.
Af hverju eru ekki dómar hérna á Íslandi teknir strax í gildi? af hverju eru brotamenn og hvað þá síbrotamenn of lengi á götunni áður en þeir taka út sinn dóm? Af hverju er ekki eytt meiri peningum almenningsins í að stækka við fangelsin og búa til meira pláss fyrir þá aukningu sem er búinn að vera of lengi í gangi í stað þess að vera að henda inn flatskjám og öðrum munaðarvörum í afbrotamenn - hvers vegna er dvölin í fangelsinu ekki aðeins drastískari - hví hlífum við þessum brotamönnum jafnvel í fangelsinu sjálfu? Mitt álit er það að um leið og þú ert gripinn við eitthvað álika hættulegt og að keyra 111 metra flutningaskipi ölvaður eigirðu að taka út þína refsingu og vera vikið strax úr starfi fyrir vítavert gáleysi.
Drukkinn skipstjóri handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.11.2009 | 07:54
sorglegt dæmi
Mér finnst heimurinn fara síversnandi - enn eitt formið er að maður þarf að fara hafa áhyggjur af barninu sínu einfaldlega því það er rauðhært - að búið sé að gera heilan dag þar sem skotleyfi er gefið á rauðhærða einstaklinga er bara út í kú. Hvað þá að í raun að teiknimyndaþáttur sé búinn að ná að smita þessu bresku/amerísku hefð út um allan heim. Skólayfirvöld á Íslandi mega þó eiga það að hafa tekið stíft á þessu - í skóla drengsins míns - sem er nota bene rauðhærður ungur drengur var farið í allar stofur og rætt um afleiðingar ef einhver myndi akta út á þessum degi - í Reykjavik voru nokkrum börnum rekið heim eftir að hafa einmitt sparkað í rauðhærða samnenmendur sína. Hvaða dagur verður skáldaður upp næst???
eftir betri skoðun þá hef ég víst mislesið aðeins og er þetta breskt fyrirbæri og þá South Park þátturinn er hann væntanlega kanadískur??? endilega kommentið - en í einum þættinum af South park fer ein persónan í nánast heilagt stríð við rauðhærða í bænum og kallar þá sálarlausa. En þessi dagur á sér eldri rætur í Bretlandi og nefnist ,,gingers bashing day" Sá dagur er enn haldinn hátíðlegur í allavega einum framhaldsskóla í bretlandi.
Hægt er að finna sambærilegar greinar einnig á visir.is og pressan.is og dv.is
http://pressan.is/pressupennar/Lesa_Gillz/raudhaerdir-hafa-lika-tilfinningar
http://visir.is/article/20091119/FRETTIR01/833616223
http://visir.is/article/20091119/FRETTIR01/671051865
http://visir.is/article/20091119/FRETTIR01/261521031
Einelti gegn rauðhærðum í tilefni dagsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)