ekki verið að hugsa dæmið til enda

Og hvar endar þessi hugsun, að sjúkrahúsin hafi ekki einu sinni efni á að setja plástur á sár? 

Eitt er að spara og annað að nauðga sjúkrahúsunum og heilbrigðisgeiranum. 

Ég upplifi að þessir ráðamenn sem hafi verið að taka þessar ákvarðanir hugsi ekki alla leið  s.s ber dæmið um aldraða og hve illa er farið með það - og þetta er fólkið sem ruddi veginn og byggði landið okkar svo verður það gamalt og þá skiptir það ekki lengur máli - eða það eru allavega skilaboðin sem þeim og okkur er gefið - smá aðvörun - við verðum ÖLL GÖMUL EINN DAGINN - og ef að í dag sé svona komið fram við hina öldruðu - hvernig verður það þegar við verðum gömul?  Og ef við snúum okkur að sjúkrahúsum - hvað munu ráðamenn gera þegar þeir verða veikir - fá sjúkdóma - börnin þeirra fá sjúkdóma? Og þeir ganga á vegg, því niðurskurðurinn er svo mikill að það er ekki lengur starfsfólk til að sinna þér og þínum - aðgerðir eru ekki lengur framkvæmdar á landinu því þær eru of dýrar í rekstri, eða það er komið gap af kynslóð lækna sem vantar þvi þeir eru farnir þangað sem þeir fá að nota hæfileika sína -  það er farið að hugsa svo mikið um hverja krónu að það er búið að gleymast  að mannslífið er ÓMETANLEGT - forgangsröðum á nýjan leik - það er fullt af stöðum sem hægt er að skera niður.

Eins og til dæmis höfum við ekkert við Hörpu húsið að gera - það hefði vel geta beðið.


mbl.is Klárlega komin að sársaukamörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það væri gaman að vita hvar ætti að spara hjá ríkinu ef ekki með því að skera útgjöld til heilbrigðis-, tryggingar- og menntamála? Í þetta fer meginhluti útgjalda ríkisins. Niðurskurður ríkisútgjalda hljómar nefnilega alltaf svo vel í kenningunni en öllu ver þegar kemur að framkvæmdinni! Það er eins og sumir haldi að hægt sé að bjarga fjárhag ríkisins með því að loka sendiráðum ...

Pétur (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 11:13

2 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Það mætti byrja á því að dragar úr beingreiðslum til stjórnmálaflokka, lækka ellilífeyrissporslur fyrrverandi stjórnmálamanna niður í 157 þús.kr., leggja niður 90% sendiráða erlendis, fækka blýantsnagandi afætum innan stjórnsýslunnar sem fá borgað fyrir að hanga í vinnunni o.s.frv.

Sumarliði Einar Daðason, 16.10.2010 kl. 11:33

3 Smámynd: Ragnar Birkir Bjarkarson

ég veit að ég er ekki eitthvað brjálæðislega mikið inni í stjórnmálum og mér leiðist þau afskaplega mikið , ég skal viðurkenna það - en svona common sense sýnir mér bara að það eru fullt af öðrum hlutum sem hægt er að draga úr eða geyma í stað endalausra niðurskurða á  sjúkrahúsum eða á öryrkjum og ellilífeyrisþegum

Ragnar Birkir Bjarkarson, 16.10.2010 kl. 13:56

4 Smámynd: Ragnar Birkir Bjarkarson

held þetta sé bara spurning um að velta fleiri steinum og skoða undir - athuga fleiri vettvangi og annað slíkt til að sjá fleiri lausnir - bara horfandi á suðurnesin sér maður hve sorglega er búið að misþyrma þeirri heilbrigðistofnun af völdum ríkis niðurskurðar

Ragnar Birkir Bjarkarson, 16.10.2010 kl. 13:57

5 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Pétur, það á að byrja að  taka menntakerfið fyrir, okkur dugir 2-3 háskólar.

Það að veitast að "heilsu" almennings er ekki sniðugur sparnaður

Þar fyrir utan heyrði ég eitt sinn að það væri hættulegt ef fjöldi háskólamenntaðra(háskólamanna) manna fer yfir 5%  þá sé hætta á því að hagkerfi viðkomandi þjóðar hrynji. Á íslandi er um 3% þjóðarinnar í háskóla og mönnum finnst það skrítið hvernig fór

Brynjar Þór Guðmundsson, 16.10.2010 kl. 18:36

6 Smámynd: Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir

mér finnst ráðamenn þjóðarinnar forgangsraða mjög einkennilega vægast sagt !!!!

Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 17.10.2010 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband