Hvað gerist þegar fólk sem er ekki trúað deyr?

 040610_cbrown_mp_his_wharram_gravestoneÉg er mikið búinn að vera að pæla í þessu - fólk sem sagt hefur sig úr þjóðkirkjunni, fólk sem trúir ekki og aðrir hópar af fólki - segjum sem svo  að það myndi deyja í dag, hvað verður um þetta fólk - t.d jarðarfararlega séð,  er það jarðað bara í kirkjugarðinum eins og allir - eða flokkast kirkjugarður bara sem samfélagslegur þáttur en ekki trúarlegur?? koma prestar við sögu og ef svo er - væri það ekki hálf á skjön þar sem það hefur sagt sig úr öllu trúarlegu og væri þá á skjön við lífsskoðanir þessa einstaklinga?     Eða talar sýslumaður yfir kistunni? Væri þá ekki fjölskylda viðkomandi að brjóta því sem þessi persóna trúði á eða trúði ekki á.

Og hvað ef þú tilheyrir eins og Búdda trúarfélagi eða Ásatrúarfélagi -  hvernig gengi það fyrir sig?

Bara smápæling viðurkenni að ég er ekki með mikla vitneskju um akkúrat þetta dæmi

 

Sálmarnir 103:1-2
Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn; lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. 

 

Guð gefi ykkur góðan dag 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað gerist þegar trúað fólk deyr... nákvæmlega það sama og þegar trúlaus maður deyr; Game over.

Í jarðaför minni verður kannski spilað eitthvað skemmtilegt lag, einhver vinur eða ættingi kemur fram og segir eitt og annað um mig.
Allt mjög persónulegt, vinir, ættingjar.. alls ekki verið að bæta einhverjum óþekktum galdrakarli inn í dæmið

doctore (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 14:57

2 identicon

Kirkjugarðar eru á forræði ríkisins en ekki ríkiskirkjunnar og eru því allir jarðaðir með sama hætti. Munurinn er líklega sá að prestur sér ekki um 'ræðuna' heldur náinn vinur eða ættingi.

Ef fólk er í öðrum trúfélögum er þetta misjafnt hvort einhverskonar trúarlegur leiðtogi eða nánir vinir sjá um athöfnina.

Staðsetning athafnar getur í sjálfu sér verið í hvaða sal sem er.

Björk (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 16:23

3 Smámynd: Ragnar Birkir Bjarkarson

Takk fyrir commentin  - þetta er ekki meint sem einhver sleggjudómur á trúlausa eða fólk í öðrum trúarbrögðum en ég - einfaldlega pælingar

Ragnar Birkir Bjarkarson, 18.10.2010 kl. 17:55

4 Smámynd: Ragnar Birkir Bjarkarson

doctor E er galdrakarlinn í Oz í huga þér

Ragnar Birkir Bjarkarson, 18.10.2010 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband