13.3.2011 | 17:02
erum við að fitna inn í nýja tíma ??
Of mikil húshitun gerir fólk feitara
Það getur verið notalegt að hækka aðeins hitann innandyra á veturna en vísindamenn segja að það geri það að verkum að við fitnum. Ef hitastigið er hinsvegar lækkað innandyra þá getur það orsakað meiri brennslu.
Þegar mannfólkinu er kalt skelfur það sem eru ósálfráð viðbrögð. Við það skreppa vöðvar saman til þess að framkalla hita, sem gerir það að verkum að við brennum hitaeiningum í kjölfarið.
Menn þurfa þó ekki að drepast úr kulda til þess að ná fram þessum áhrifum. Nægjanlegt er að hafa fremur svalt innandyra til þess að auka brennsluna. Tengist þetta brúnni fitu sem er fituvefur sem myndaður er af brúnleitum stoðvef og frumum sem hafa að geyma örsmáa fitudropa. Brún fita geymir mikinn hitaeiningafjölda og getur stuðlað að mikilli fitubrennslu en til þess að virkja hana þarf kulda.
Þetta segja breskir vísindamenn sem telja að of mikill hiti innandyra sé að auka offitu á meðal manna. Bresku vísindamennirnir sem stóðu að rannsókninni birtu grein í tímaritinu Obesity Reviews. Það sem er eftirtektaverðast er að fólk kyndir allt heimili sitt. Áður fyrr kynti fólk aðeins stofuna en ekki svefnherbergin. Nú er allt kynt og þarf því fólk ekki lengur að aðlagast hitabreytingum, segir Fiona Johnson, sem fer fyrir hópi vísindamanna sem stóðu að rannsókninni.
Það er heldur ekki ábætandi að hennar mati að fólk ferðast í upphituðum bílum, í stað þess að ganga, og að börn eyði minni tíma í að leika sér utandyra.
Þetta er sagt hafa áhrif á magn brúnnar fitu sem fólk geymir í líkamanum. Ef þér verður ekki kalt missir þú brúnu fituna og það hefur áhrif á brennslu líkamans, en þú getur fengið brúnu fituna aftur, segir Fiona Johnson.
Við erum öll með nokkuð mikið magn af brúnni fitu þegar við erum börn. Sú fita minnkar eftir því sem við eldumst. En ef við þörfnumst hennar vegna mikils kulda þá framleiðir líkaminn meira af henni, segir Johnson.
Hún tekur þó fram að ekki er einungis hitastigi að kenna að fólk verður of feitt heldur er meginorsök þess ofát og hreyfingarleysi. Einnig er tekið fram að sú brennsla sem myndast við kulda getur einungis gagnast fólki við þyngdarstjórnun sé þessari aðferð beitt yfir langvarandi tímabil.
grein tekin af dv.is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.