Enn og aftur er vegið að fjölskyldum þessa lands

Fæðingarorlof styttist

Fæðingarorlof verður stytt á næsta ári. Mynd/ AFP.
Fæðingarorlof verður stytt á næsta ári. Mynd/ AFP.

Karen Kjartansdóttir skrifar:

Fæðingarorlof styttist og hámarksgreiðslur úr fæðingarorlfossjóði lækka samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Draga á úr útgjöldum fæðingarorlofssjóðs á næsta ári um einn milljarð króna.

Áformað er að draga úr útgjöldum sjóðsins með aðgerðum sem fela í sér styttingu orlofsréttar, lækkun á hámarksgreiðslum eða lækkun á hlutfalli útgreiðslu af reiknuðum bótum.

Hins vegar er lagt til að foreldra sem eru utan vinnumarkaðs, eða í minna 25 prósent starfi, fái hærra framlag en nú er greitt út til þeirra.

Þá er gerð 8 milljón króna hagræðingarkrafa vegna umsýslukostnaðar Vinnumálstofnunar með sjóðnum.

Nýlega greindi fréttastofa stöðvar 2, Bylgjunnar og vísis frá því að mun færri feður taka nú fæðingarorlof eftir að orlofsgreiðslur lækkuðu síðustu áramót.

Fyrstu sex mánuði ársins fækkaði feðrum í fæðingarorlofi um 114 að meðaltali á mánuði.

 

http://visir.is/faedingarorlof-styttist-/article/2010394337721

 

Það fer mikið fyrir brjóstið á mér hve mikið er skorið allstaðar - og fjölskyldufólki er í raun ýtt í sundur - því þegar á heildina er litið þá samkvæmt þessu kerfi okkar að þá er vænlegara að vera einstæður en sem hjón í þessu landi - fjárhagslega séð  - Halló Ísland vöknum - allt of margir eru að flýja til landa sem hlúa að fjölskyldum en ýta þeim ekki í sundur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband