Foreldraboðorðin.

Foreldraboðorðin 10
eftir Kevin Ryan, prófessor og deildarforseti við háskólann í Boston.

Fyrsta boðorð: Láttu foreldrahlutverkið ganga fyrir.Sumir foreldrar á Vesturlöndum hafa um tíma verið í fríi frá börnum sínum. Niðurstöðurnar eru ljósar og ekki uppörvandi. Að ala upp barn og rækta með því mannkosti krefst bæði tíma og athygli. Rannsóknir í kennslufræðum hafa leitt í ljós að lykilatriði góðrar kennslu felst í því að halda nemendum við efnið. Góðir foreldrar láta börnin ganga fyrir.

Annað boðorð: Vertu góð fyrirmynd.Horfðust í augu við það. Takstu á við það. Það er hluti af því að kallast foreldri. Engum líkar það allskostar að vera sífellt góð fyrirmynd en það er eðli málsins. Í raun kemstu aldrei hjá því hvort sem það leiðir til hins betra eða verra. Nútíma sálfræði hefur komist að sömu niðurstöðu og reynsla aldanna hefur sýnt að maðurinn lærir fyrst og fremst af þeim fyrirmyndum sem í kringum hann eru. Hann lærir ekki eingöngu að ganga og tala á þann hátt heldur einnig siðferðileg gildi.

Þriðja boðorð: Berðu ekki byrðarnar ein/n.Allir sem umgangast börnin okkar eru fyrirmyndir að einhverju leyti, til góðs eða ills. Þrátt fyrir að foreldrar séu öflugasta fyrirmyndin þá hafa aðrir einnig áhrif á siðferðisgildi og afstöðu barnanna. Bræður og systur, nágrannar og vinir, ættingjar, bílstjórar og skólaliðar hafa áhrif á börnin en þó sér í lagi kennarar. Við verðum að vera vakandi fyrir því hvers konar áhrifum börnin okkar verða fyrir, hvar hægt er að stýra og móta umhverfi þeirra þannig að þau fái að umgangast hið góða.

Fjórða boðorð: Taktu virkan þátt í skólagöngu barnsins.Foreldrar, fyrst og fremst, rækta með börnum mannkosti en skólar og þá kennarar spila þar stórt hlutverk. Það er mikilvægt að vita hvað er að gerast í skólalífi barnsins þíns, í námi sem á leikvellinum, í kennslustofunni sem í búningsklefunum. Kennarar verða að vita af áhuga ykkar og finna að þeir hafi ykkar stuðning til ræktunar mannkosta hjá börnunum.

Fimmta boðorð: Hafðu áhrif á hvað fer inn í huga og hjarta barnsins.Mannkostir fela það í sér að þroska tilfinningu fyrir réttu og röngu, hvað er sterkur einstaklingur og hvað er veiklunda einstaklingur. Auk þeirra manneskja sem barnið umgengst og mótast af þá eru bækur, sjónvarp, tónlist og kvikmyndir sífellt að bera barninu siðferðileg skilaboð. Foreldrar verða að hafa áhrif á hvaða hugmyndir flæða yfir börnin.

Sjötta boðorð: Haltu þig við grunnatriðin.Börn fæðast ekki full af mannkostum eða fullþroskaða siðferðisvitund. Þau þurfa langan tíma til að læra. Byrjið því ekki með háar væntingar eða miklar kröfur. Kennið grunnatriði eins og heiðarleika, umhyggju og ábyrgð. Þegar börnin vaxa úr grasi beinið þá sjónum að þrautseigju, prúðmennsku og réttlæti. Hjálpið þeim að byggja mannkosti á traustum grunni venja og dyggða.

Sjöunda boðorð: Agaðu með elskandi huga.Börn þurfa ákveðin mörk. Þau verða fá að vita hvað má og hvað ekki. Þau þarfnast reglna og aðhalds. Þau ganga alltaf lengra en þau mega og brjóta reglur. Skynsamleg ögun er hluti af þroska og námi, sérstaklega þegar rækta skal mannkosti. Börn verða hinsvegar að skilja hvers vegna ögunin er og vita að uppspretta hennar er elska og umhyggja foreldranna.

Áttunda boðorð: Notaðu siðfræði.Athafnir ættu ekki að kallast „viðeigandi" eða „óviðeigandi". Særandi hegðun á einfaldlega að kallast „röng" eða „slæm". Hegðun sem stuðlar að vellíðan fjölskyldu eða heill annarra ætti að kallast „góð" eða „rétt". Börn ná ekki ekki áttum nema að fullorðnir noti slíkt tungutak.

Níunda boðorð: Takmarkaðu ekki ræktun mannkosta við orðin ein.Börnum verður snemma að lærast að mannkostir eru meira en orðin tóm; „það er eitt að tala um veginn en annað að ganga eftir honum". Með sjálfsaga, góðum venjum, vingjarnleika og tillitssemi gagnvart öðrum ættu foreldrar að hjálpa börnum sínum að þroska með sér siðferðiskennd. Börnum verður snemma að skiljast að kjarni mannkosta er hegðun, þeirra eigin hegðun.

Tíunda boðorð: Settu ræktun mannkosta í öndvegi á þínu heimili.Foreldrar og börn búa við margskonar utanaðkomandi áreiti og mikil ásókn er í okkar tíma sem dreifir huganum. Tíðarandinn hrópar stöðugt athygli, tíma og starfsorku. Börnin verða að vita að okkar umhyggja fyrir þeim felst því að þau noti uppvaxtarárin til að auka þrótt og styrk svo þeim auðnist að verða mannkostafólk.
(Karl Frímannsson, skólastjóri, þýddi)

 

hér er linkurinn, var að vafra og sá þetta og það hitti í mark - hvað viljum við foreldrar gera varðandi börnin okkar - hvaða kosti og eiginleika viljum við sjá hjá þeim? Við erum einmitt að takast á við aðstæður sem við erum ekki alveg vön núna - en dóttir okkar er 10 mánaða og er svolitið ákveðin - flestar bækur og rit eru afmörkuð á ögun frá 2 ára aldri og uppúr sem ég hef séð.  Hver er þá rétta leiðin til að sýna 10 mánaða gömlu barni hvað er rangt og hvað er rétt - eða erum við á rangri leið?, við viljum það besta fyrir börnin okkar og þá á náttúrulega það við að við viljum ekki að dóttir okkar endi með hegðunarvandamál, sonur okkar var ekki svona á þessum aldri þannig að þetta er eitthvað nýtt til að takast á við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir

http://www.doktor.is/index.php?option=com_d-greinar&Itemid=0&do=view_grein&id_grein=879

Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 10.12.2009 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband