29.12.2009 | 10:11
Sálmur 92
Sálmarnir 92 |
1Sálmur. Hvíldardagsljóð. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2009 | 08:39
Skunkur í megrun
Þegar skunkur er settur í megrun að þá er eitthvað mikið að, samt það sem heggur í augað í þessarri grein er að hann hafi dottið í beikonsamlokuát og þyngst verulega út frá því. Þetta náttúrulega fær mann bara til að hlæja, hvaða skunkur dettur óvart í beikonsamlokuát - eru það ekki eigendunum að kenna að svona sé farið fyrir dýrinu, búið að hlaða ofan í greyið einhverju sulli og svo sett á greyið í ofanaálag einhverjar americas next top model reglur og staðlar hvernig hann eigi að vera og hve mikið hann eiga að vega, hvað ef að það sé þungt í beinunum hans hefur það eitthvað að segja? - mér finnst þetta hið grátbroslegasta mál - ég vorkenni greyinu, hann skilur ábyggilega ekkert í þessu megrunar rugli
over and át
![]() |
Offeitur skunkur í megrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2009 | 08:32
flott framlag
![]() |
Is it True? valið lag ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2009 | 06:03
vissi ekki að hún væri ólétt??
![]() |
Handtekin eftir að hafa fætt barn á salerni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.12.2009 | 06:51
Gleðileg jól öllsömul
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs - megi andi jesú fylgja ykkur inn í nýtt ár - megiði eiga jól full af kærleika, gleði, hlátur, hamingju og friðar
Jóhannesarguðspjall 4:14
en hvern sem drekkur af vatninu er ég gef honum mun aldrei þyrsta að eilífu. Því vatnið, sem ég gef honum, verður í honum að lind sem streymir fram til eilífs lífs.
Fyrsta Jóhannesarbréf 3:1
Börn Guðs Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt okkur, að við skulum kallast Guðs börn. Og það erum við. Heimurinn þekkir okkur ekki vegna þess að hann þekkti hann ekki.
Sálmarnir 86:5
Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.
Sálmarnir 86:12
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að eilífu
Sálmarnir 95:6-7
Komið, föllum fram og tilbiðjum, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum. Því að hann er vor Guð og vér erum gæslulýður hans, hjörðin sem hann gætir. Ó, að þér í dag vilduð heyra raust hans:
Efesusbréfið 2:10
Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi Jesú til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau.
Sálmarnir 62:8
Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði.
Lúkasarguðspjall 2:11
Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.
|
Þótt ég talaði tungum manna og engla, Af náð eruð þér hólpnir orðnir. Drottinn er góður og vill okkur aðeins það besta, Hann elskar okkur á þann veg sem við getum aldrei almennilega skilið - ást hans er það mikil, ást hans byggist ekki á því hve mikið við gerum heldur eingöngu fyrir þann part að við erum börnin hans, við tilheyrum honum - við þurfum ekki að áorka einu né neinu til að eignast þann hlut - aðeins að játa það að jesús er kristur frelsarinn okkar - í dag er aðfangadagur jóla, og sú hugsun sem ríkir mest í hjarta mínu og huga er hvað ég er þakklátur fyrir Guð - hann á ævarandi ást og fyrirgefningu og hann leiðir okkur á réttu staðina sama hve langan tíma það tekur, hann á nefnilega eitthvað sem okkur mannfólkið skortir stundum, þolinmæðina og endalaust mikið af henni - hleypum kærleikanum og fyrirgefningunni fram njótum þess að lifa og gefa og taka á móti kærleika. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur friðar jól |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.12.2009 | 10:25
getur verið erfitt að setja sig í annarra manna spor
![]() |
Vilhjálmur prins á götunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2009 | 08:23
Eina jákvæða fréttin
Hún Faith er er greinilega undarverk - kraftaverk, magnað að vita til þess að hundur sem fæðist vanskapaður og nær að sigrast á hindrununum sínum sem lífið skellti á sig, nær til þúsunda fólks og gefur því von - að mínu mati er þetta Guð að verka í henni til góðs - þetta er góð áminning að halda áfram og láta lífsins vonbrigði ekki draga sig of mikið niður, lyfta upp hökunni og brosa framan í lífið - eftir allt er það stærsta gjöfin sem Guð gaf okkur.
því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns
Sálmarnir 100:5
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur
sálmarnir 103:8
Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
markúsarguðspjall 13:31
sá þessa mynd og fékk hana lánaða - finnst hún svolítið táknræn upp á lífið, það er langur vegur - þurfum að muna að fókusera á það sem skiptir máli - jákvæðu hlutirnir, fjölskyldan, vinirnir, það góða sem byggir okkur upp og gefur okkur fallega ásýn af lífinu, ég fylgist mikið með fréttum á netinu og upplifun mín er sú að það er of mikið af neikvæðum fréttum og of lítil prósenta af jákvæðum fréttum, uppbyggilegum sem fá hjörtun okkar til að brosa - fréttin um faith hins vegar fékk hjartað mitt til að brosa og væntanlega mun þitt hjarta líka brosa - okkur finnst alltaf yndislegt þegar að fólk og jafnvel dýr eins og á við í þessu tilfelli nær að gera það sem myndi flokkast að sigrast á lífinu og fara þessa extra mílu til að lifa lífinu vel þó það þýði að skoppa um á afturfótunum sem hundur gegnum allt lífið með brosi og gleði. Þetta minnir mig á setninguna sem að mamma mín heitin sagði svo oft, ,,Guð leggur aldrei meiri byrðar á axlir okkar en við getum borið" nú var hún ekkert gífurlega mikið trúuð en hún mamma vissi samt greinilega hvað hún var að raula um - hátíðar og jól draga alltaf upp minningar af mömmu minni og þó að fólk fari frá þá eigum við alltaf þessar góðu gömlu minningar sem ylja okkur um hjörtun, tíminn sem við áttum saman og eigum með fólkinu sem er enn með okkur er sá tími sem skiptir öllu máli - njótum þess að vera til og munum að kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
![]() |
Tvífættur hundur er mikill gleðigjafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
15.12.2009 | 11:22
fær hjartað til að stoppa - fjöldajarðarför
![]() |
Systkini létust vegna gamallar jarðsprengju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2009 | 11:05
Sorglegasta mál
Hvernig stendur á því að hámenntaðir menn sem fara fyrir að dæma í svona málum gleyma ávallt að virðist þolandanum ´i þessum máum eða hvað? Mér finnst þetta hneykslismál og of algengt því miður. Er ekki tekið neitt inn í dæmið að sálarlíf fólks sem verður fyrir svona skaðast, það tekur tíma að vinna svona upp og þetta brot gerist um hábjartan dag. Gerendurnir fá hlægilegan dóm og eiginlega engar sjáanlegar afleiðingar í kjölfar dóms, hvað með eftirmál hjá þeim líkt og til dæmis sálfræðimeðferðir, skyldumætingar á einhvernstað í viðtöl og jafnvel áfengis og eiturlyfjapróf? Að ganga í burtu með jafn léttvægan dóm og þetta er er hneisa, hvernig stendur á því að á árinu 2009 að þá eru dómar of vægir - það á aldrei að vera réttlætanlegt að framkvæma brot og geta bara ,,gengið í burt"
Ég bið fyrir þolandanum að hún nái fullum bata og trausti á samfélaginu sínu sem brást henni ég bið líka fyrir gerendunum að þær fái fullan skilning á því broti sem þær frömdu - Guð blessi allar þessar stelpur
![]() |
Eins og blaut tuska í andlitið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.12.2009 | 08:28
byssumenn á Íslandi, hljómar alltaf jafn einkennilega
Umsátur vegna byssuhótana
Umsátursástand skapaðist við hús í Reykjanesbæ á tíunda tímanum í morgun. Lögreglan á Suðurnesjum kallaði til sérsveitina vegna byssuhótana, en eftir um hálftíma umsátur um íbúðina þar sem meintir byssumenn höfðu til gáfu sig fram við lögreglu. Þeir voru þá án skotfæra.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var forsaga málsins sú að nokkrir menn bönkuðu upp á hjá tveimur karlmönnum, sem þeir eru málkunnugir, í morgun, en þeir töldu sig eiga harma að hefna eftir slagsmál í morgunsárið. Mennirnir tveir hótuðu aðkomumönnunum og í framhaldinu var lögreglan kölluð til. Hún náði símasambandi við mennina sem höfðu í hótunum og í framhaldinu gáfu þeir sem fram. Allir mennirnir eru góðkunningjar lögreglunnar, að hennar sögn.
Eru ekki að koma jól segi ég nú bara?? Hvar er jólaandinn - kærleikur fyrir náunganum - gleðin og sameiningin sem á að skapast í kringum hátíðarnar? því miður myndast oft afmyndun af því sem hátíðarnarnar eiga að snúast um, fólk festist í of miklum gleðskap og þetta verður oft afleiðing þess, er samt ekki að alhæfa - nokkrir kunna að fara með veigar. Það skrýtna er kannski að maður pælir ekki mikið í þessu fyrr en þetta verður of nálægt manni, ég bý í Reykjanesbæ, ég fer ekki á lífið, á bara ekki heima þar í dag og þar af leiðandi kannski verður maður ekki jafn var við þá brenglun sem getur myndast við skemmtanalíf - ef við virkilega spáum bara i orðinu - skemmtanalíf - hvað er skemmtilegt að enda á gjörgæslu, höfuðkúpubrotin eða með lögregluna á hælunum því þú hótaðir mannslífi? og mér finnst þetta bara jafn mikil morðhótun þó að vantað hefði skotvopnin í haglabyssuna og hafnarboltakylfan var ekki fallegri leikur heldur hjá hinum aðilunum, er þú ert kominn á þennan stað í lífinu er þá ekki komin tími til að skoða sín mál - njótum desembers með fjölskyldu og vinum og förum rólega inn um gleðinnar dyr
![]() |
Umsátur vegna byssuhótana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)