Gleðileg jól öllsömul

Jólakveðja 2009

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs - megi andi jesú fylgja ykkur inn í nýtt ár - megiði eiga jól full af kærleika, gleði, hlátur, hamingju og friðar

Jóhannesarguðspjall 4:14
en hvern sem drekkur af vatninu er ég gef honum mun aldrei þyrsta að eilífu. Því vatnið, sem ég gef honum, verður í honum að lind sem streymir fram til eilífs lífs.“

Fyrsta Jóhannesarbréf 3:1
Börn Guðs Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt okkur, að við skulum kallast Guðs börn. Og það erum við. Heimurinn þekkir okkur ekki vegna þess að hann þekkti hann ekki.

Sálmarnir 86:5
Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.

Sálmarnir 86:12
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að eilífu

Sálmarnir 95:6-7
Komið, föllum fram og tilbiðjum, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum. Því að hann er vor Guð og vér erum gæslulýður hans, hjörðin sem hann gætir. Ó, að þér í dag vilduð heyra raust hans:

Efesusbréfið 2:10
Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi Jesú til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau.

Sálmarnir 62:8
Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði.

Lúkasarguðspjall 2:11
Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.



 

Þótt ég talaði tungum manna og engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma
og ætti alla þekking,
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú,
að færa mætti fjöll úr stað,
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,
og þótt ég framseldi líkama minn,
til þess að vera brenndur,
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.

Kærleikurinn er langlyndur,
hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur,
hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega,
leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki,
er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni,
en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt,
trúir öllu, vonar allt,
umber allt.

Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna,
og þekking, hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum
og spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur,
þá líður það undir lok, sem er í molum.

Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn
og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða maður,
lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá,
í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum,
en þá mun ég gjörþekkja,
eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.

En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.
(I. Korintubréf 13. kafli)

Af náð eruð þér hólpnir orðnir.
Guð hefur uppvakið oss í Kristi Jesú
og búið oss stað í himinhæðum með honum.
Þannig vildi hann á komandi öldum
sýna hinn yfirgnæfandi ríkdóm náðar sinnar
með gæsku sinni við oss í Kristi Jesú.

Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú.
Þetta er ekki yður að þakka.
Það er Guðs gjöf.
Ekki byggt á verkum,
enginn skal geta miklast af því
.
(Efesusbréfið 2:6-9)

Drottinn er góður og vill okkur aðeins það besta, Hann elskar okkur á þann veg sem við getum aldrei almennilega skilið - ást hans er það mikil, ást hans byggist ekki á því hve mikið við gerum heldur eingöngu fyrir þann part að við erum börnin hans, við tilheyrum honum - við þurfum ekki að áorka einu né neinu til að eignast þann hlut - aðeins að játa það að jesús er kristur frelsarinn okkar - í dag er aðfangadagur jóla, og sú hugsun sem ríkir mest í hjarta mínu og huga er hvað ég er þakklátur fyrir Guð - hann á ævarandi ást og fyrirgefningu og hann leiðir okkur á réttu staðina sama hve langan tíma það tekur, hann á nefnilega eitthvað sem okkur mannfólkið skortir stundum, þolinmæðina og endalaust mikið af henni - hleypum kærleikanum og fyrirgefningunni fram njótum þess að lifa og gefa og taka á móti kærleika.

Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur friðar jól



getur verið erfitt að setja sig í annarra manna spor

Ég tek ofan af fyrir prinsinum, oft er skotið á fólk sem er þekkt að setja sig í annarra manna spor  og hvað þá spor þeirra sem minna mega sín og þeirra sem eiga ekkert - sem hlýtur að vera erfitt þegar þú sjálfur átt allt, en hann lét ekkert segja sér þetta tvisvar og tókst á við áskorunina.  Fyrir mitt leyti er ég þakklátur Guði að ég á þak yfir höfuðið og fjölskyldu sem elskar mig og ef sú staða kæmi upp að þá fengi ég svefnpláss á sófanum en endaði ekki á götunni með börnin, við megum ekki gleyma að Það eru ekki allir það blessaðir.
mbl.is Vilhjálmur prins á götunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina jákvæða fréttin

Hún Faith er er greinilega undarverk - kraftaverk, magnað að vita til þess að hundur sem fæðist vanskapaður og nær að sigrast á hindrununum sínum sem lífið skellti á sig, nær til þúsunda fólks og gefur því von - að mínu mati er þetta Guð að verka í henni til góðs - þetta er góð áminning að halda áfram og láta lífsins vonbrigði ekki draga sig of mikið niður, lyfta upp hökunni og brosa framan í lífið - eftir allt er það stærsta gjöfin sem Guð gaf okkur.

 því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns

Sálmarnir 100:5

Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur
sálmarnir 103:8


Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.

markúsarguðspjall 13:31

hope.jpg

sá þessa mynd og fékk hana lánaða - finnst hún svolítið táknræn upp á lífið, það er langur vegur - þurfum að muna að fókusera á það sem skiptir máli - jákvæðu hlutirnir, fjölskyldan, vinirnir, það góða sem byggir okkur upp og gefur okkur fallega ásýn af lífinu, ég fylgist mikið með fréttum á netinu og upplifun mín er sú að það er of mikið af neikvæðum fréttum og of lítil prósenta af jákvæðum fréttum, uppbyggilegum sem fá hjörtun okkar til að brosa - fréttin um faith hins vegar fékk hjartað mitt til að brosa og væntanlega mun þitt hjarta líka brosa - okkur finnst alltaf yndislegt þegar að fólk og jafnvel dýr eins og á við í þessu tilfelli nær að gera það sem myndi flokkast að sigrast á lífinu og fara þessa extra mílu til að lifa lífinu vel þó það þýði að skoppa um á afturfótunum sem hundur gegnum allt lífið með brosi og gleði.  Þetta minnir mig á setninguna sem að mamma mín heitin sagði svo oft, ,,Guð leggur aldrei meiri byrðar á axlir okkar en við getum borið" nú var hún ekkert gífurlega mikið trúuð en hún mamma vissi samt greinilega hvað hún var að raula um - hátíðar og jól draga alltaf upp minningar af mömmu minni og þó að fólk fari frá þá eigum við alltaf þessar góðu gömlu minningar sem ylja okkur um hjörtun, tíminn sem við áttum saman og eigum með fólkinu sem er enn með okkur er sá tími sem skiptir öllu máli - njótum þess að vera til og munum að kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.


mbl.is Tvífættur hundur er mikill gleðigjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fær hjartað til að stoppa - fjöldajarðarför

ég veit ekki hvað ég mynd gera ef þetta væri mitt líf, get ekki ýmindað mér sársaukann að missa ekki bara eitt barn sitt heldur öll og það í einu - 6 börn dáin því að jarðsprengja var ekki hreinsuð upp, hver ber ábyrgð spyr maður sig -  afleiðing af stríði m-rgum árum síðar
mbl.is Systkini létust vegna gamallar jarðsprengju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegasta mál

Hvernig stendur á því að hámenntaðir menn sem fara fyrir að dæma í svona málum gleyma ávallt að virðist þolandanum ´i þessum máum eða hvað? Mér finnst þetta hneykslismál og of algengt því miður.  Er ekki tekið neitt inn í dæmið að sálarlíf fólks sem verður fyrir svona skaðast, það tekur tíma að vinna svona upp og þetta brot gerist um hábjartan dag. Gerendurnir fá hlægilegan dóm og eiginlega engar sjáanlegar afleiðingar í kjölfar dóms, hvað með eftirmál hjá þeim líkt og til dæmis sálfræðimeðferðir, skyldumætingar á einhvernstað í viðtöl og jafnvel áfengis og eiturlyfjapróf? Að ganga í burtu með jafn léttvægan dóm og þetta er er hneisa, hvernig stendur á því að á árinu 2009 að þá eru dómar of vægir - það á aldrei að vera réttlætanlegt að framkvæma brot og geta bara ,,gengið í burt"

Ég bið fyrir þolandanum að hún nái fullum bata og trausti á samfélaginu sínu sem brást henni ég bið líka fyrir gerendunum að þær fái fullan skilning á því broti sem þær frömdu - Guð blessi allar þessar stelpur


mbl.is Eins og blaut tuska í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

byssumenn á Íslandi, hljómar alltaf jafn einkennilega

Umsátur vegna byssuhótana

Umsátursástand skapaðist við hús í Reykjanesbæ á tíunda tímanum í morgun. Lögreglan á Suðurnesjum kallaði til sérsveitina vegna byssuhótana, en eftir um hálftíma umsátur um íbúðina þar sem meintir byssumenn höfðu til gáfu sig fram við lögreglu. Þeir voru þá án skotfæra.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var forsaga málsins sú að nokkrir menn bönkuðu upp á hjá tveimur karlmönnum, sem þeir eru málkunnugir, í morgun, en þeir töldu sig eiga harma að hefna eftir slagsmál í morgunsárið. Mennirnir tveir hótuðu aðkomumönnunum og í framhaldinu var lögreglan kölluð til. Hún náði símasambandi við mennina sem höfðu í hótunum og í framhaldinu gáfu þeir sem fram. Allir mennirnir eru góðkunningjar lögreglunnar, að hennar sögn.

 

Eru ekki að koma jól segi ég nú bara?? Hvar er jólaandinn - kærleikur fyrir náunganum - gleðin og sameiningin sem á að skapast í kringum hátíðarnar?  því miður myndast oft afmyndun af því sem hátíðarnarnar eiga að snúast um, fólk festist í of miklum gleðskap og þetta verður oft afleiðing þess, er samt ekki að alhæfa - nokkrir kunna að fara með veigar.  Það skrýtna er kannski að maður pælir ekki mikið í þessu fyrr en þetta verður of nálægt manni, ég bý í Reykjanesbæ, ég fer ekki á lífið, á bara ekki heima þar í dag og þar af leiðandi kannski verður maður ekki jafn var við þá brenglun sem getur myndast við skemmtanalíf - ef við virkilega spáum bara i orðinu - skemmtanalíf - hvað er skemmtilegt að enda á gjörgæslu, höfuðkúpubrotin eða með lögregluna á hælunum því þú hótaðir mannslífi? og mér finnst þetta bara jafn mikil morðhótun þó að vantað hefði skotvopnin í haglabyssuna og hafnarboltakylfan var ekki fallegri leikur heldur hjá hinum aðilunum, er þú ert kominn á þennan stað í lífinu er þá ekki komin tími til að skoða sín mál - njótum desembers með fjölskyldu og vinum og förum rólega inn um gleðinnar dyr


mbl.is Umsátur vegna byssuhótana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldraboðorðin.

Foreldraboðorðin 10
eftir Kevin Ryan, prófessor og deildarforseti við háskólann í Boston.

Fyrsta boðorð: Láttu foreldrahlutverkið ganga fyrir.Sumir foreldrar á Vesturlöndum hafa um tíma verið í fríi frá börnum sínum. Niðurstöðurnar eru ljósar og ekki uppörvandi. Að ala upp barn og rækta með því mannkosti krefst bæði tíma og athygli. Rannsóknir í kennslufræðum hafa leitt í ljós að lykilatriði góðrar kennslu felst í því að halda nemendum við efnið. Góðir foreldrar láta börnin ganga fyrir.

Annað boðorð: Vertu góð fyrirmynd.Horfðust í augu við það. Takstu á við það. Það er hluti af því að kallast foreldri. Engum líkar það allskostar að vera sífellt góð fyrirmynd en það er eðli málsins. Í raun kemstu aldrei hjá því hvort sem það leiðir til hins betra eða verra. Nútíma sálfræði hefur komist að sömu niðurstöðu og reynsla aldanna hefur sýnt að maðurinn lærir fyrst og fremst af þeim fyrirmyndum sem í kringum hann eru. Hann lærir ekki eingöngu að ganga og tala á þann hátt heldur einnig siðferðileg gildi.

Þriðja boðorð: Berðu ekki byrðarnar ein/n.Allir sem umgangast börnin okkar eru fyrirmyndir að einhverju leyti, til góðs eða ills. Þrátt fyrir að foreldrar séu öflugasta fyrirmyndin þá hafa aðrir einnig áhrif á siðferðisgildi og afstöðu barnanna. Bræður og systur, nágrannar og vinir, ættingjar, bílstjórar og skólaliðar hafa áhrif á börnin en þó sér í lagi kennarar. Við verðum að vera vakandi fyrir því hvers konar áhrifum börnin okkar verða fyrir, hvar hægt er að stýra og móta umhverfi þeirra þannig að þau fái að umgangast hið góða.

Fjórða boðorð: Taktu virkan þátt í skólagöngu barnsins.Foreldrar, fyrst og fremst, rækta með börnum mannkosti en skólar og þá kennarar spila þar stórt hlutverk. Það er mikilvægt að vita hvað er að gerast í skólalífi barnsins þíns, í námi sem á leikvellinum, í kennslustofunni sem í búningsklefunum. Kennarar verða að vita af áhuga ykkar og finna að þeir hafi ykkar stuðning til ræktunar mannkosta hjá börnunum.

Fimmta boðorð: Hafðu áhrif á hvað fer inn í huga og hjarta barnsins.Mannkostir fela það í sér að þroska tilfinningu fyrir réttu og röngu, hvað er sterkur einstaklingur og hvað er veiklunda einstaklingur. Auk þeirra manneskja sem barnið umgengst og mótast af þá eru bækur, sjónvarp, tónlist og kvikmyndir sífellt að bera barninu siðferðileg skilaboð. Foreldrar verða að hafa áhrif á hvaða hugmyndir flæða yfir börnin.

Sjötta boðorð: Haltu þig við grunnatriðin.Börn fæðast ekki full af mannkostum eða fullþroskaða siðferðisvitund. Þau þurfa langan tíma til að læra. Byrjið því ekki með háar væntingar eða miklar kröfur. Kennið grunnatriði eins og heiðarleika, umhyggju og ábyrgð. Þegar börnin vaxa úr grasi beinið þá sjónum að þrautseigju, prúðmennsku og réttlæti. Hjálpið þeim að byggja mannkosti á traustum grunni venja og dyggða.

Sjöunda boðorð: Agaðu með elskandi huga.Börn þurfa ákveðin mörk. Þau verða fá að vita hvað má og hvað ekki. Þau þarfnast reglna og aðhalds. Þau ganga alltaf lengra en þau mega og brjóta reglur. Skynsamleg ögun er hluti af þroska og námi, sérstaklega þegar rækta skal mannkosti. Börn verða hinsvegar að skilja hvers vegna ögunin er og vita að uppspretta hennar er elska og umhyggja foreldranna.

Áttunda boðorð: Notaðu siðfræði.Athafnir ættu ekki að kallast „viðeigandi" eða „óviðeigandi". Særandi hegðun á einfaldlega að kallast „röng" eða „slæm". Hegðun sem stuðlar að vellíðan fjölskyldu eða heill annarra ætti að kallast „góð" eða „rétt". Börn ná ekki ekki áttum nema að fullorðnir noti slíkt tungutak.

Níunda boðorð: Takmarkaðu ekki ræktun mannkosta við orðin ein.Börnum verður snemma að lærast að mannkostir eru meira en orðin tóm; „það er eitt að tala um veginn en annað að ganga eftir honum". Með sjálfsaga, góðum venjum, vingjarnleika og tillitssemi gagnvart öðrum ættu foreldrar að hjálpa börnum sínum að þroska með sér siðferðiskennd. Börnum verður snemma að skiljast að kjarni mannkosta er hegðun, þeirra eigin hegðun.

Tíunda boðorð: Settu ræktun mannkosta í öndvegi á þínu heimili.Foreldrar og börn búa við margskonar utanaðkomandi áreiti og mikil ásókn er í okkar tíma sem dreifir huganum. Tíðarandinn hrópar stöðugt athygli, tíma og starfsorku. Börnin verða að vita að okkar umhyggja fyrir þeim felst því að þau noti uppvaxtarárin til að auka þrótt og styrk svo þeim auðnist að verða mannkostafólk.
(Karl Frímannsson, skólastjóri, þýddi)

 

hér er linkurinn, var að vafra og sá þetta og það hitti í mark - hvað viljum við foreldrar gera varðandi börnin okkar - hvaða kosti og eiginleika viljum við sjá hjá þeim? Við erum einmitt að takast á við aðstæður sem við erum ekki alveg vön núna - en dóttir okkar er 10 mánaða og er svolitið ákveðin - flestar bækur og rit eru afmörkuð á ögun frá 2 ára aldri og uppúr sem ég hef séð.  Hver er þá rétta leiðin til að sýna 10 mánaða gömlu barni hvað er rangt og hvað er rétt - eða erum við á rangri leið?, við viljum það besta fyrir börnin okkar og þá á náttúrulega það við að við viljum ekki að dóttir okkar endi með hegðunarvandamál, sonur okkar var ekki svona á þessum aldri þannig að þetta er eitthvað nýtt til að takast á við.


Hættir einhver íslensk hljómsveit yfirhöfuð??

Enn ein íslenska hljómsveitin að tilkynna um að hún sé að hætta, mér finnst þetta reyndar vera tilkynning um pásu ef eitthvað er fram á sumar - allar þessar hljómsveitir taka þráðinn upp aftur á endanum gott dæmi Nýdönsk sem hætti og byrjaði aftur og fleiri væri hægt að telja upp. 

 Á móti sól er frekar góð hljómsveit og Magni með einum af okkar bestu söngvurum landsins, það var gaman að fylgjast með honum í Rockstar því hann er mjög einlægur einstaklingur en ekki einhver sem hefur látið ,,frægðina" fara sér til höfuðs.  Sem mér finnst frekar skondið - við búum á landi sem er um  300 þús manns - að ná frægð hér er fínasta mál - en ég held að hún sé vandmeðfarnari á svona litlum stað - við eignumst ekki Hollywood stjörnur á Íslandi nema þær fari frá Íslandi og búi og starfi þá í Hollywood gott dæmi Anita Briem og Sigurjón kvikmyndakarl man ekki eftirnafnið í fljótu bragði.  En margar ,,stjörnurnar" hér koma fram sem þær séu álika merkilegar og Hollywoodgeirinn LoL lífið er yndislegt og í enda dagsins erum við öll jafn merkilega Hollywoodkeimuð.  Guð blessi Ísland og okkar íslensku gæðastjörnur


mbl.is Á móti sól að hætta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað???

hvernig er þett hægt að vera síðan ekki viss um virknina eftir að búið er að eyða öllum þessum pening og tíma í þetta mál???

 


mbl.is Efasemdir um virkni tamiflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18 dagar í jólin og andinn er mættur

Fyrstu jól dóttur minnar og jólaandinn er kominn yfir mig - ég hef ekki átt spenning yfir jólum svo árum skiptir - mikið verður gaman að fylgjast með henni yfir öllu þessu saman - svona hefðir eins og hamborgartréið er áminning hve stutt er í jólin - mér finst þetta falleg hefð og sagan á bakvið hugljúf - minnir mann á að íslenska þjóðin á heitt hjarta þó það sé kuldalegt og hrjúft landið, þetta minnir okkur líka á boðskapinn sælla er að gefa en að þiggja og þetta tré er í raun ávöxtur þess.


mbl.is Ljósin tendruð á Hamborgartré
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband